Bókleg próf
Prófayfirlit 2013
Sjá reglur um próf
Gjaldskrá Flugmálastjórnar Íslands
Sjá reglugerð um skírteini nr. 401/2008 varðandi kröfur um bókleg próf á flugvél:
- Bókleg einkaflugmannspróf: Sjá 1. viðbæti við JAR-FCL 1.130 & 1.135
- Bókleg atvinnuflugmanns- og blindflugspróf: Sjá J kafla (JAR-FCL 1.465 - 1.495)
Fyrirspurnir um bókleg próf, t.d. prófatöflu eða um framkvæmd þeirra skulu sendar á tölvupóstfangið: prof@caa.is.
Hægt er skila umsóknum með rafrænum hætti á netfangið prof@caa.is.
Greiða má fyrir próf í afgreiðslu Flugmálastjórnar, með kreditkorti í gegnum síma (569-4100), eða með millifærslu á reikning 0101 - 26 - 700022 kt: 550169-6819. Ef greitt er með millifærslu skal senda greiðslukvittun á netfangið prof@caa.is.
Hvert próf kostar PPL 3.840 kr. / ATPL 5.430 kr.
ATHUGIÐ að skráning í próf er ekki gild nema greiðsla hafi borist fyrir síðasta skráningardag ásamt staðfestingu flugskóla um námsárangur.
Ekki er hægt að fá prófgjald endurgreitt nema gegn framvísun læknisvottorðs.
Nemendur eru beðnir um að taka eftirfarandi með sér í prófin; Skilríki, blýant, strokleður, reglustiku, óforritanlega reiknivél, plotter, flugreiknistokk og sjónflugskort í flugleiðsögu (PPL) eða Student Pilot Route Manua (ATPL). Nota má kort E(LO)1 og E(LO)1a úr "Student Pilot Route Manual" í General Navigation prófinu.