Nýjar reglur um skírteini flugliða

Út er komin ný reglugerð frá Evrópusambandinu (ESB) sem hefur að geyma nýjar reglur um skírteini flugliða. Reglugerðin tók gildi innan ESB þann 8. apríl 2012 og kemur til framkvæmda hér á landi þann 8. apríl 2013. Reglugerðin verður innleidd í íslenskan rétt á grundvelli EES-samningsins og mun leysa núverandi reglugerðir um skírteini flugliða af hólmi. Væntanlegar reglur byggja á svokölluðum JAR-FCL reglum sem hafa verið í gildi á Íslandi um árabil. Hinar nýju reglur munu þó hafa í för með sér ýmsar breytingar þ.m.t. hvað varðar gildissvið. Þær munu þannig ekki eingöngu taka til skírteina flugliða á flugvél/þyrlu líkt og JAR-FCL reglurnar heldur munu þær einnig ná til svifflugmanna og stjórnenda loftbelgja. Hér á eftir er reynt að gera grein fyrir helstu breytingum og nýmælum sem væntanlegar reglur munu hafa í för með sér fyrir einstakling. Vakin er athygli á því að eftirfarandi umfjöllun er eingöngu sett fram í upplýsingaskyni og að ekki er um tæmandi greiningu á Part-FCL reglunum að ræða.

    Ný skírteini
  • Eftir gildistöku Part-FCL reglnanna hér á landi mun Flugmálastjórn hætta að gefa út JAA skírteini og þjóðarskírteini fyrir flugliða. Þess í stað verða gefin út ný skírteini svokölluð Part-FCL skírteini, sem gilda á öllu EES-svæðinu.
    JAA skírteini halda gildi sínu
  • JAA skírteini gefin út fyrir gildistöku hinna nýju reglna munu halda gildi sínu áfram. Handhafar þeirra munu, þegar kemur að endurnýjun skírteinisins, fá gefið út Part-FCL skírteini án þess að þurfa að uppfylla nokkur ný skilyrði.
    Þjóðarskírteinum þarf að umbreyta
  • Við gildistöku Part-FCL reglnanna munu þjóðarskírteini missa gildi sitt og þurfa handhafar þeirra því að umbreyta skírteinum sínum. Handhafar þjóðarskírteina þurfa, vilji þeir halda réttindum sínum, annaðhvort að umbreyta skírteinum sínum í JAA skírteini fyrir 8. apríl 2013 eða í hin nýju Part-FCL skírteini eftir gildistöku Part-FCL reglnanna. Flugmálastjórn hvetur alla handhafa þjóðarskírteina til að umbreyta skírteinum sínum sem fyrst. Frekari upplýsingar er hægt að nálgast hjá Flugmálastjórn í síma 569-4100.
    Nýr flokkur skírteina fyrir frístunda flugmenn
  • Einnig verður með nýju reglunum innleiddur nýr flokkur skírteina fyrir létt loftför (light aircraft pilot licence). Skírteinið er ætlað þeim sem vilja eingöngu fljúga léttum loftförum (undir 2000 kílóum) í tómstundaskyni.
    Nýjar áritanir
  • Með Part-FCL reglunum verða einnig teknar upp nýjar áritanir fyrir listflug, flug með borða auk sérstakrar fjallaflugsáritunar.