Skírteini sem ekki eru JAR-FCL skírteini
Erlend skírteini flugmanna

Erlend JAR-FCL skírteini flugmanna gilda til að stjórna loftförum sem skráð eru á Íslandi og í öðrum aðildarríkjum JAA. Unnt er að breyta erlendum JAR-FCL skírteinum í íslensk JAR-FCL skírteini ef uppfylltar eru kröfur í JAR-FCL 1.065 og 1.070/2.065 og 2.070 varðandi búsetu eða störf á Íslandi.

    Erlend einkaflugmannsskírteini gefin út í samræmi við staðla í ICAO Annex 1 en ekki samkvæmt JAR-FCL
  • Ferðamenn geta neytt einkaflugmannsréttinda erlends flugmannsskírteinis í íslenskum flugvélum í 3 mánuði en aðeins í sjónflugi að degi til.
  • Til að neyta næturflugs- eða blindflugsréttinda eða fljúga í lengri tíma þarf að fullgilda skírteinið. Fullgilding er heimild Flugmálastjórnar til að neyta réttinda erlenda skírteinisins í vissan tíma.

    Erlend atvinnuflugsskírteini (CPL eða ATPL)
  • Til að fljúga atvinnuflug í íslenskum loftförum þurfa handhafar erlendra (ICAO) atvinnuflugskírteina, sem ekki eru samkvæmt JAR- FCL, að fá skírteini sín fullgild.
  • Fullgilding er sérstakt leyfi til að neyta réttinda erlenda skírteinisins til að stjórna loftfari skráðu á Íslandi.
  • Fullgilding atvinnuflugsskírteina gildir aðeins í eitt ár og takmarkast við störf hjá tilteknum íslenskum flugrekanda sem sækir um fullgildinguna, sjá JAR-FCL 1.015 og 2.015 (b) og 1. viðbæti við 1.015/2.015.

    Umbreyting erlends ICAO skírteinis í íslenskt JAR-FCL skírteini
  • Um það gilda sömu kröfur um búsetu og störf á Íslandi og JAR-FCL skírteini ásamt kröfum í grein JAR-FCL 1.016/2.016 varðandi þjálfun sem í sumum tilfellum má stytta.
  • Flugmálastjórn getur falið flugskóla að meta færni og þekkingu umsækjanda um íslenskt JAR-FCL skírteini á grundvelli erlends ICAO skírteinis. Alltaf þarf samt að taka öll bókleg og verkleg JAR-FCL próf.