Skírteini sem ekki eru JAR-FCL skírteini
Innlend íslensk skírteini
Innlend íslensk skírteini eru gefin út samkvæmt Reglugerð um skírteini og sem byggist á stöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar (ICAO Annex 1) og eru ekki samkvæmt JAR-FCL ( Sjá reglugerð nr. 400/2008).
Flugmálastjórn Íslands gefur út eftirfarandi innlend skírteini:
- Skírteini svifflugmanns.
- Skírteini fisflugmanns
- Skírteini flugvélstjóra
- Skírteini flugumsjónarmanns.
Þessi skírteini gilda aðeins til að stjórna eða starfa við loftför skráð á Íslandi.
PART 66 skírteini flugvéltækna eru gefin út í samræmi við sérstakar samevrópskar kröfur samkvæmt tilskipun 2042/2003 og PART 66.
Skírteini flugumferðarstjóra eru gefin út í samkvæmt reglugerð 404/2008 og tilskipun 2006/23/EC.
Innlendum íslenskum skírteinum flugmanna sem mátti gefa út áður en viss aðlögunartími að JAR-FCL var liðinn er unnt að breyta í JAR-FCL skírteini ef uppfylltar eru kröfur varðandi fartíma o.fl., sjá 1. viðbæti við JAR-FCL 1.005 og 2.005. Handhafar kennaraáritana verða að breyta skírteinum sínum í JAR-FCL skírteini eigi síðar en 31. mars 2010 – að öðrum kosti verða kennaraáritanir ógildar.