Tegundaráritun á þyrlu
Tegundaráritun á þyrlu gildir í eitt ár frá útgáfudegi eða þegar hún fellur úr gildi.
Til að framlengja tegundaráritun á þyrlu sem er í gildi skal umsækjandi
- ljúka hæfniprófi á viðkomandi tegund á þriggja mánaða tímabilinu áður en áritunin fellur úr gildi, og
- hafa minnst tvo fartíma á gildistíma áritunarinnar
- Hæfnipróf fyrir blindflugsáritun skal taka samtímis (Sjá JAR-FCL 2.245(b))
Til að endurnýja tegundaráritun á þyrlu sem er fallin úr gildi skal umsækjandi
- ljúka færniprófi á viðkomandi þyrlutegund og
- uppfylla þær kröfur sem Flugmálstjórn ákveður.
- Áritunin gildir frá því að allar kröfur fyrir endurnýjun eru uppfylltar (JAR-FCL 2.245(e)).