Hvað þarf að gera til að verða flugvéltæknir/flugvirki?

Til þess að fá útgefið skírteini flugvéltæknis sem veitir heimild til að starfa í viðurkenndum viðhaldsstöðvum á evrópska efnahagssvæðinu, s.k. EASA Part 66 skírteini, þarf að fara í 4 - 5 ára nám. Námið fer fram í viðurkenndum EASA Part 147 skólum sem eru í mörgum löndum á evrópska efnahagssvæðinu. Námið er bæði bóklegt og verklegt og lýkur með fullum réttindum flugvéltæknis. Undanfarið hafa Íslendingar aðallega farið í nám til Danmerkur. Flugmálstjórn gefur út skírteini flugvéltækna.

Gömlu íslensku flugvéltæknis-/flugvirkjaskírteinin sem byggðust á stöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAO Annex 1, var hætt að gefa út árið 2002. Handhafar þeirra skírteina hafa getað breytt þeim í fullgild evrópsk PART 66 skírteini. Þeir sem ekki breyttu skírteinum sínum fyrir 28. september 2006 hafa eftir það skertar heimildir. Þeir mega ekki undirrita viðhaldsvottorð fyrir loftför í flutningaflugi. Flugvéltæknar þurfa ekki heilbrigðisvottorð.

Sjá nánar

Hvað þarf að gera til að verða flugvélstjóri?

JAA, Flugöryggissamtök Evrópu, hafa samþykkt kröfur fyrir flugvélstjóra, JAR-FCL 4. Nokkur aðildarríki JAA hafa innleitt þær kröfur en hér hefur það ekki verið gert. Ástæðan er að þörf fyrir flugvélstjóra hefur, með nýjum breyttum flugvélum undanfarin ár, verið að minnka. Hér á landi hafa verið gefin út sárafá flugvélstjóraskírteini í mörg undanfarin ár.

Hér er í gildi innlend reglugerð um flugvélstjóraskírteini sem byggist á stöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar ICAO, Annex 1. Handhafar innlendra íslenskra flugvélstjóraskírteina eru flugvéltæknar sem hafa hlotið 100 fartíma kennslu sem flugvélstjórar hjá viðkomandi flugfélagi með samþykki Flugmálastjórnar. Þau skírteini gilda aðeins til starfa í flugvélum skráðum á Íslandi. JAR-FCL flugvélstjóraskírteini gilda eins og JAR-FCL skírteini flugmanna á loftför skráð í aðildarríkjum JAA. Í JAR-FCL 4 er gert ráð fyrir að flugvélstjórar séu annað hvort handhafar flugvéltækniskírteinis sem hafa tekið bóklegt próf fyrir atvinnuflugmannsskírteini 1. flokk eða handhafar atvinnuflugmannsskírteinis sem hafa farið á sérstakt námskeið í flugvéltækni. Flugvélstjóri þarf að vera handhafi 1. flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorðs sem gildir í 12 mánuði. Sjá reglugerð nr. 400/2008 varðandi innlend íslensk flugvélstjóraskírteini og reglugerð 403/2008 varðandi JAR-FCL heilbrigðisvottorð.

Flugvélstjórum er eins og flugmönnum skylt að færa flugdagbók. Þeir sem eru handhafar JAR-FCL skírteina þurfa að færa sérstaka JAA flugdagbók. Flugdagbókin á alltaf að fylgja með öllum umsóknargögnum sem lögð eru inn til skírteinadeildar. Sjá grein 1.080 í reglugerð nr. 401/2008 um hvernig færa skal JAR-FCL flugdagbók.

Hvað þarf að gera til að verða flugumferðarstjóri?

Umsækjandi um skírteini flugumferðarstjóra þarf að vera orðinn 21 árs og hafa lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.

Flugumferðarstjóri er handhafi flugumferðastjóraskírteinis og stjórnar flugumferð. Nám í flugumferðarstjórn fer fram á vegum skóla sem hlotið hafa samþykki Flugmálastjórnar.

Námið er fræðilegt, verklegt og sérhæfð starfsþjálfum. Til að byrja með þarf nemi í flugumferðarstjórn að fá úrgefið nemaskírteini og má þá starfa undir stjórn starfsþjálfara. Um er að ræða mismunandi deildir og starfstöðvar og eru áritanir í skírteini eftir því. Má nefna flugturnsþjónustu, aðflugsstjórn og svæðisþjónustu. Skírteinið byggist á stöðlum Alþjóðaflugmálastofnunarinnar, ICAO, Annex 1 og tilskipun Evrópuþings og ráðs 2006/23/EC. Flugumferðarstjóri þarf gilt heilbrigðisvottorð frá fluglækni, annað hvort 1. flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorð eða 3. flokks Evrópu heilbrigðisvottorð. Sjá reglugerð 404/2008 varðandi skírteini flugumferðarstjóra og 3. flokks heilbrigðisvottorð og reglugerð 403/2008 varðandi 1. flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorð.

Sjá nánar

Hvað þarf að gera til að verða flugumsjónarmaður?

Umsækjandi um skírteini flugumsjónarmanns skal vera orðinn 21 árs gamall.

Flugumsjónarmaður starfar við undirbúning flugs hjá flugrekendum og er ekki skylt að vera handhafi skírteinis flugumsjónarmanns. Eftirfarandi kröfur eru m.a. gerðar fyrir útgáfu skírteinis flugumsjónarmanns:

  • Umsækjandi um skírteinið skal hafa stúdentspróf í ensku, stærðfræði og eðlisfræði eða hafa lokið öðru hliðstæðu námi.
  • Hann skal ljúka bóklegu prófi hjá Flugmálastjórn
  • Hann skal hafa lokið viðurkenndu þjálfunarnámskeiði eða stundað eftirfarandi störf samtals í tvö ár eða eitt þeirra í minnst 1 ár: Þ.e. aðstoðarmaður í flugumsjón; sem flugmaður í loftflutningum; sem flugumferðarstjóri eða veðurfræðingur við flugumsjón.
  • Hann skal þessu til viðbótar hafa starfað sem flugumsjónarmaður undir eftirliti flugumsjónarmanns eigi skemur en 90 daga á síðustu 6 mánuðum fyrir umsókn um skírteini.

Flugumsjónarmaður þarf ekki heilbrigðisvottorð. Sjá grein 4.6 í reglugerð 400/2008.

Hvaða reglur gilda um heilbrigðisvottorð þessara skírteina?

Skylt er að hafa gilt heilbrigðisvottorð til að fá útgefið skírteini flugvélstjóra og flugumferðarstjóra.

  • Flugvélstjórar þurfa 1. flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorð.
  • Flugumferðarstjórar þurfa annað hvort 1. flokks JAR-FCL heilbrigðisvottorð eða 3. flokks ICAO/ Evrópu heilbrigðisvottorð.
  • Heilbrigðisvottorðið þarf að vera í gildi þegar farið er í færni- eða hæfnipróf.

 

Heilbrigðisskoðanir fara fram hjá fluglæknum sem til þess hafa hlotið samþykki Flugmálastjórnar í samræmi við kröfur reglugerða 400/403/404/2008. Fluglæknar starfa ýmist í samþykktum fluglæknasetrum eða sjálfstætt. Hægt er að fara í heilbrigðisskoðanir hjá samþykktum fluglæknum í öðrum aðildarríkjum JAA fyrir JAR-FCL heilbrigðisskoðanir, þó ekki í fyrstu skoðun vegna útgáfu skírteinis og ekki í 3. flokks heilbrigðisskoðun flugumferðarstjóra. Fyrsta 1. flokks heilbrigðisskoðun þarf að fara fram í fluglæknasetri. Sjá JAR-FCL 3 í reglugerð 403/2008 og reglugerð 404/2008. Sjá lista yfir fluglækna á Íslandi á síðunni um almenn atriði og í kaflanum Heilbrigðiskröfur.