Hvað er vökvi?
Allur vökvi, gel, krem, smyrsl, úðaefni, o.s.frv. hvort sem er í flöskum, þrýstibrúsum, túpum eða öðrum umbúðum.
Algengir hlutir, sem fólk hefur með sér og flokkast undir vökva, eru: gos, áfengi, ilmvatn, rakakrem, tannkrem, varagloss, hárlakk, sápur, sjampó svo eitthvað sé nefnt
Hvað er handfarangur?
Farangur sem farþega er heimilt að bera um borð í flugvélar.
Hvað er innritaður farangur?
Farangur sem er innritaður hjá flugrekenda og fer í lest flugvélar.
Vökva má ferðast með í handfarangri að eftirfarandi skilyrðum uppfylltum:

- Hver eining umbúða má að hámarki rúma 100 millilítra (1dl) af vökva
- Allar umbúðirnar verða að rúmast í gegnsæjum eins (1) lítra plastpoka sem hægt er að loka með plastrennilás
- Hverjum farþega er heimilt að hafa með sér einn poka
- Með umbúðum er átt við flöskur, túpur, hylki og annað sem getur innihaldið vökva
- Gosflöskur og dósir eru flestar stærri en 100 ml (1dl) og eru því ekki leyfðar inn fyrir öryggishlið
Farþegar mega hafa meðferðis aðrar nauðsynjar til persónulegra nota meðan á flugi stendur ef öryggisverðir telja ekki ógn stafa af þeim:
- Lyf merkt notanda í magni sem dugir meðan á flugferð stendur
- Barnamat
- Matvæli vegna sérstaks mataræðis
- Farþegi gæti þurft að færa sönnur á innihald óski öryggisverðir eftir því
Frekari upplýsingar má nálgast upplýsingar hjá öryggisvörðum Keflavíkurflugvallar í síma 425-0622.