Reynir Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðsReynir Sigurðsson, framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs
Sími: 569 4345
Fax: 562 3619
Netfang: reynir@caa.is






Hlutverk flugleiðsögu- og flugvallasviðs er að annast stjórnsýslu og viðhafa eftirlit með flugleiðsögu, flugvöllum og flugvernd á Íslandi. Í því felast málaflokkar eins og veiting starfsleyfa, heimildaveitingar og tilnefning flugleiðsöguþjónustuaðila. Sviðið sinnir jafnframt ráðgjöf við gerð samgönguáætlunar og tengd verkefni og tekur virkan þátt í innleiðingu og mótun reglugerða og krafna.

Til flugvalla teljast alþjóðlegir flugvellir sem og almennir flugvellir og lendingarstaðir. Flugleiðsöguþjónusta samanstendur af flugumferðarþjónustu, veðurþjónustu, upplýsingaþjónustu flugmála og fjarskipta-, leiðsögu- og kögunarþjónustu.

Flugleiðsögu- og flugvallasvið er nýtt svið innan Flugmálstjórnar, stofnað í kjölfarið á miklum breytingum sem orðið hafa á þessum málaflokki á Íslandi sem og á alþjóðavettvangi þar sem þjónustuhlutverk (íslenska ríkisins) hefur verið skilið frá stjórnsýslu- og eftirlitshlutverkum. Þetta gerðist formlega á Íslandi 1.1.2007, með breytingu á lögum.

Þær kröfur sem íslensk flugleiðsaga og flugvellir lúta má að stórum hluta rekja til Evrópubandalagsins en Ísland tilheyrir Evrópusambandi flugmálastjórna (ECAC) og er hluti af sam-evrópska loftrýminu (SES) í gegnum samninginn um evrópska efnahagsvæðið. Kröfur sem flugvellir og flugvernd lúta hafa verið settar til samræmis við kröfur Evrópusambandsins og Alþjóða flugmálastofnunarinnar ICAO sem Ísland er aðili að.

Samskipti og samvinna á alþjóðavettvangi vegna þessara málaflokka er stór hluti af starfsemi sviðsins.

Flugleiðsögu- og flugvallasviði er skipt í tvær deildir, flugleiðsögudeild og flugvalla- og flugverndardeild. Á sviðinu starfar hópur sérfræðinga með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu.

Framkvæmdastjóri flugleiðsögu- og flugvallasviðs er Reynir Sigurðsson. Reynir er með meistaragráðu í rafmagnsverkfræði og með próf í viðskipta- og rekstrarfræði frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Reynir kemur frá Gagnaveitu Reykjavíkur þar sem hann stýrði verkefnastofu. Áður starfaði hann að flugleiðsögu- og flugvallamálum sem starfsmaður danska ráðgjafafyrirtækisins Integra Consult A/S til ársins 2006 og hjá Flugmálastjórn Íslands kerfisdeild flugumferðasviðs á níunda áratugnum. Reynir hóf störf að nýju hjá Flugmálastjórn Íslands árið 2008.