Pétur K. Maack, flugmálastjóriPétur K. Maack, flugmálastjóri
Sími ritara 569-4113
petur@caa.is







Flugmálastjóri er æðsti yfirmaður Flugmálastjórnar og heyrir stofnunin undir innanríkisráðuneytið og um leið innanríkisráðherra.
Pétur K. Maack var skipaður í embætti flugmálastjóra 1. janúar 2007.
Pétur starfaði í tæpan áratug sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs Flugmálastjórnar Íslands. Pétur er rekstrarverkfræðingur með meistarapróf í vélaverkfræði frá Danmarks tekniske Hojskole og doktorspróf í rekstrarverkfræði frá sama skóla. Reynsla hans í flugmálum er víðtæk og spannar nánast öll svið flugmála meðal annars vottunar- og viðhaldsmál, flugrekstur, þjálfun flugliða, rekstur flugvalla, flugverndarmál og alþjóðaflugmál. Þá býr hann yfir reynslu í alþjóðlegu samstarfi bæði hvað varðar rannsóknir og kennslu á háskólastigi sem og í flugheiminum. Hann var um árabil dósent og síðan prófessor við verkfræðideild Háskóla Íslands.
Dagleg stjórnun Flugmálastjórnar er í höndum flugmálastjóra og þriggja framkæmdarstjóra jafn margra sviða, stjórnsýslusvið, flugöryggissvið og flugleiðsögu- og flugvallasvið.
Flugmálastjóri hefur yfirumsjón með stjórnsýslu stofnunarinnar, samskiptum hennar við ráðuneyti og aðrar stofnanir sem og samskipti við ýmsar alþjóðastofnanir og samtök. Þar má nefna þátttöku Íslands í Alþjóðaflugmálastofnuninni (ICAO), Flugöryggissamtökum Evrópu (JAA) og Flugöryggisstofnun Evrópu (EASA). Flugmálastjórar Norðurlandanna hafa einnig með sér samstarf og hittast reglulega.
Þá heyrir Sérverkefnastofa beint undir flugmálastjóra