Einar Örn Héðinsson, framkvæmdastjóri flugöryggissviðs
Beinns ími 569 4187
Fax 562 3619
Netfang einarh@caa.is
Starfsemi flugöryggissviðs er skipt í lofthæfi- og skrásetningardeild, flugrekstrardeild, og þjálfunar- og skírteinadeild. Hjá flugöryggissviði starfa beint rúmlega 20 manns auk þess sem ýmsir vinna að sérverkefnum í nafni flugöryggissviðs, eins og prófdómarar og læknar.
Verkefnin felast annars vegar í eftirliti með rekstri loftfara og að gera úttektir á starfsemi flugrekenda, viðhaldsstöðva, flugskóla, fluglæknasetra o.fl., og hins vegar í útgáfu ýmiss konar skírteina eða leyfa. Auk þess er um að ræða ýmis tengd verkefni t.d. greining á gögnum um flugöryggi og skoðanir á erlendum loftförum. Þá heldur flugöryggissvið utan um lög og reglur sem snerta flugöryggi og tekur þátt í ýmsu samstarfi um öryggismál, og leitast við að koma á framfæri upplýsingum um flugöryggi og stuðla að umræðu á því sviði.
Til þess að geta sinnt hlutverki sínu í flugöryggismálum og þjónað viðskiptavinum sínum, þar með töldum flugrekendum, flugskólum og flugliðum sem best, þarf flugöryggissvið að leggja sitt af mörkum á alþjóðavettvangi til að tryggja hagsmuni skjólstæðinga sinna, ekki síst með því að stuðla að því að flugöryggi sé í hávegum haft í alþjóðlegu samhengi. Flugöryggissvið hefur því tekið fullan þátt í starfsemi Flugöryggissamtaka Evrópu (JAA, Joint Aviation Authorities) á undanförnum árum. Flugöryggissvið hefur alltaf lagt á það áherslu að vera meðal þeirra JAA ríkja sem taka greiðlega upp samræmdar reglur JAA og voru því með þeim fyrstu sem tóku upp JAR-FCL í skírteinamálum og JAR-OPS-1 fyrir stærri flugrekendur.
Á síðustu árum er þróunin sú að Flugöryggisstofnun Evrópu EASA er smátt og smátt að taka yfir hlutverk JAA og tók yfir þegar árið 2004 málaflokka er varða viðhaldsstjórnun og framkvæmd viðhalds á loftförum, tegundarskírteini o.fl. EASA tekur yfir á árinu 2008 eftirlit og þróun og samræmingu varðandi kröfur í flugrekstri og skírteinamálum. Ísland er aðili að Flugöryggisstofnun Evrópu - EASA og tekur flugöryggissvið fullan þátt í starfseminni hennar.
Markmið þau sem flugöryggissvið hefur, eru eftirfarandi:
-
Að tryggja að öryggi í flugi sé sambærilegt við það sem best gerist erlendis, þó á þann hátt að rekstri íslenskra aðila í flugi sé ekki íþyngt um of.
-
Að tryggja að allar úttektir séu fagmannlegar, sannanlegar og að fylgt sé skjalfestum verklagsreglum.
-
Að enginn vafi sé um áreiðanleika, rekjanleika og niðurstöður úttekta og að lagalegur grundvöllur aðgerða sé ótvíræður.
-
Að miðla upplýsingum sem varða flugöryggi.
-
Að halda áreiðanlegar skrár um skírteini, leyfi og heimildir og tryggja fagmannlega og fljóta afgreiðslu þeirra.
Framkvæmdastjóri flugöryggissviðs er Einar Örn Héðinsson. Einar Örn lauk prófi í vélaverkfræði frá HÍ 1994. M.SC frá DTU 1997. Einar Örn hóf störf sem verkfræðingur hjá Flugmálastjórn Íslands 1997, varð deildarstjóri skírteinadeildar 2003 og tók við sem framkvæmdastjóri flugöryggissviðs árið 2007.