Flugmálastjórn Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir innanríkisráðuneytið. Stofnunin fer með stjórnsýslu og eftirlit á sviði loftferða hér á landi og á íslensku yfirráðasvæði.  Stofnunin annast samskipti við alþjóðastofnanir og flugmálayfirvöld annarra ríkja og sér til þess að flugöryggis- og flugverndarviðmið, uppfylli alþjóðakröfur og skuldbindingar eftir því sem kveðið er á um í lögum um stofnunina, lögum um loftferðir og alþjóðasamningum.  Flugmálastjórn Íslands stuðlar jafnframt að framgangi flugs á Íslandi og fylgist með íslenskum flugrekendum um allan heim.
Flugmálastjórn ber að starfa samkvæmt þeim lögum sem um hana gilda sérstaklega og öðrum lögum sem gilda um starfsemi opinberra stofnana eins og stjórnsýslulögum, upplýsingalögum, lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna og lögum um fjárreiður ríkisins. Þessi lög tilgreina meginsvið starfseminnar og setja henni skorður.

Til að sinna hlutverki sínu snýst starfsemin í aðalatriðum um eftirfarandi þætti;

  • Í fyrsta lagi að veita hvers konar heimildir til að tryggja flugöryggi. Stofnunin gefur út skírteini handa einstaklingum eins og skírteini flugmanna, flugumferðarstjóra og flugvirkja. Ennfremur gefur stofnunin út lofthæfivottorð, flugrekendaskírteini, og starfsleyti fyrir flugleiðsöguþjónustu og rekstri flugvalla /lendingastaða, skóla, viðhaldsstöðva o.s.frv. Flugverndaráætlanir og notkun loftrýnis þurfa samþykkis stofnunarinnar.
  • Í öðru lagi að fylgjast með framgangi flugsins og annast eftirlit með því einkum með kröfur um flugöryggi og flugvernd að leiðarljósi. Þetta felst m.a. í því að hafa eftirlit með lofthæfi loftfara, að rétt sé staðið að flugrekstri og rekstri flugleiðsögu og flugvalla svo að flugmenn og aðrir, sem fást við flugstarfsemi, hafi tilskilin réttindi og viðhaldi þeim.
  • Í þriðja lagi að annast almenna stjórnsýslu í flugmálum og samskipti við erlendar stofnanir og gæta hagsmuna Íslendinga í hvívetna. Sérstaklega eru samskipti við Alþjóðaflugmálastofnunina mikilvæg og stofnanir innan Evrópu eins og flugöryggisstofnunina EASA enda gefa þær stofnanir út alþjóðlega staðla og reglur sem eru grundvöllur flugstarfseminnar um allan heim.

    Megin markmið stofnunarinnar eru;

  • Tryggja að flugöryggi á íslensku yfirráðasvæði og flugrekenda hvar sem er í heiminum verði ávallt með því besta sem gerist í Evrópu.
  • Tryggja viðurkenningu Íslands í flugmálum á alþjóðavettvangi.
  • Tryggja faglega, örugga og hraða afgreiðslu heimildarveitinga.
  • Tryggja íslenska flugleiðsöguþjónustu á núverandi flugstjórnarsvæði.
  • Tryggja að heildarkostnaður við stjórnsýslu, heimildarveitingar sé lægri en í nágrannaríkjunum.



Kveðið er á um starfsemi Flugmálastjórnar í lögum nr. 100 frá 13. júní 2006.

Kynningarrit um Flugmálastjórn 1945 - 2005 á PDF formi