Eðli samskipta við viðskiptavini og hagsmunaaðila og væntingar þeirra


Flugmálastjórn hefur skilgreint helstu viðskiptavini sína og hagsmunaaðila og er þeim skipt í sjö meginflokka. Ennfremur var reynt að skilgreina hverjar væru helstu væntingar þeirra. Niðurstaða þeirrar greiningar er þessi:


Lögaðilar sem fá heimild til atvinnurekstrar í flugstarfsemi

  • Eru undir eftirliti Flugmálastjórnar og verða að geta sýnt fram á að skilyrði heimildarveitinga séu ávallt fyrir hendi.
  • Væntingar eru gerðar um samræmdar, formlegar og hagkvæmar úttektir
  • Væntingar eru gerðar til skjótra viðbragða FMS um heimildarveitingar, að samræmis sé gætt og kostnaði sé haldið í lágmarki.

Einstaklingar með tiltekin réttindi

  • Hér er átt við skírteinishafa og áritanir í skírteini þeirra til sérstakra starfa. Skírteinishafi ber ábyrgð á að skilyrðum fyrir réttindum sé fullnægt.
  • Væntingar eru gerðar til hagkvæmnis, samræmis og góðrar þjónustu af hálfu stofnunarinnar.

Þjónustufyrirtæki sem reka flugleiðsöguþjónustu, flugvelli og flugstöðvar

  • Flugmálastjórn veitir heimildir til reksturs flugvalla, flugleiðsöguþjónustu og flugstöðva. Þjónustufyrirtækin eru undir eftirliti stofnunarinnar og verða þau ávallt að geta sýnt fram á að skilyrði heimildarveitingarinnar sé fyrir hendi.
  • Væntingar eru gerðar til skilnings á hefðum og aðstæðum þess rekstrar og stuðningi við uppbyggingu og breytingar. Ennfremur að hagkvæmni og samræmis sé gætt af hálfu stofnunarinnar.

Áhugamannafélög

  • Flugmálastjórn Íslands getur falið áhugamannafélögum verkefni er varða tiltekna þætti flugöryggis í samræmi við lög og reglugerðir. Lögð er áhersla á að áhugamannafélögin axli sem mest af flugöryggislegri ábyrgð.

Almenningur, flugfarþegar og aðrir sem nýta sér þjónustu þeirra sem reka flugstarfsemi

  • Flugmálastjórn Íslands starfar í þágu almannaheilla. Almenningur og viðskiptavinir leyfishafa geta leitað til Flugmálastjórnar með öll málefni er varðar stjórnsýslu og öryggi á sviði loftferða. Stofnunin miðlar upplýsingum til almennings.
  • Almenningur treystir Flugmálastjórn til að annast eftirlit með flugstarfsemi og gerir kröfu um jafnræði.

Erlend flugmálayfirvöld og alþjóðastofnanir

  • Flugmálastjórn veitir upplýsingar um stöðu flugmála hérlendis og gætir hagsmuna íslenskra flugmála á alþjóðavettvangi. Flugmálastjórn hefur eftirlit með að íslensk flugstarfsemi standist alþjóðlegar kröfur og sé trúverðug. Einnig sinnir stofnunin eftirliti með erlendum loftförum eftir atvikum. Ennfremur kemur stofnunin á framfæri sértöðu Íslands í flugmálum þegar það á við.

Innanríkisráðuneyti / Rannsóknarnefnd flugslysa

  • Flugmálastjórn Íslands er sértök stofnun undir IRR og sinnir verkefnum sínum sem slík. Verkefni skulu unnin í samræmi við stefnumótun stjórnvalda í flugmálum hverju sinni og gert er ráð fyrir góðu streymi upplýsinga, samvinnu, og aðstoð allra aðila. Ennfremur skal starfað innan fjárlaga.

Starfsmenn

  • Væntingar þeirra er þróun í starfi, þjálfun, vinnuaðstaða, öruggt starfsumhverfi, góður vinnuandi, skemmtileg og áhugaverð verkefni, að vita hvers er vænst af þeim og að frammistaða sé metin að verðleikum. Ennfremur að gerður sér kjarasamningur við þá sem er sambærilegur kjarasamningum innan fluggeirans.