Halla Sigrún Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs.
Beinn sími 569 4305
Fax 568 3916
Netfang hallas@caa.is
Hlutverk stjórnsýslusviðs er að annast almenna stjórnsýslu er varðar hlutverk og rekstur Flugmálastjórnar Íslands. Sviðið annast almenn alþjóðasamskipti og þá einkum við Alþjóðaflugmálastofnunina ICAO. Ennfremur annast sviðið mannauðs- og fjármálastjórnun og ýmsa aðra stoðþjónustu við starfsmenn stofnunarinnar.
Stjórnsýslusvið fjallar um ýmis stjórnsýslumál. Sérstaklega er varða erindi einstaklinga, stofnana, fyrirtækja og sveitarstjórna. Þá annast sviðið samskipti við innanríkisráðuneyti og Alþingi.
Verkefni sviðsins eru því mjög fjölbreytt s.s. mannauðsstjórnun, fjármálastjórnun, þátttaka í gerð og utanumhald um lög og reglur þær er stofnunin starfar eftir, afgreiðsla umsókna flugfélaga í borgaralegu flugi er vilja koma inn í íslenskt loftrými, ásamt afgreiðslu áætlunar- og lendingarflugsheimilda o.s.frv. Einnig annast sviðið undirbúning og skipulagningu flugmálahluta samgönguáætlunar.
Stjórnsýslusvið skiptist í tvær deildir, fjármáladeild og almenna stjórnsýsludeild. Á sviðinu starfar fjölbreyttur hópur starfsmanna með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu.
Framkvæmdastjóri stjórnsýslusviðs er Halla S. Sigurðardóttir. Halla lauk MBA gráðu frá University of Strathclyde í Skotlandi árið 2003 og B.A gráðu frá Háskóla Íslands árið 1999. Hún hefur unnið hjá Flugmálastjórn Íslands síðan 2004.