Flugmálastjórn Íslands auglýsir tvö laus störf lögfræðings og eftirlitsmanns í flugleiðsögu- og flugvalladeild

Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og duglegan lögfræðing til starfa á stjórnsýslusviði stofnunarinnar.

    Helstu verkefni:
  • Samning lagafrumvarpa og reglugerða, ásamt þátttöku í vinnu við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins á sviði samgöngumála  í samvinnu við innanríkisráðuneytið
  • Skrif álitsgerða og framsetning lögfræðilegs efnis
  • Svar almennra lagalegra fyrirspurna
  • Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi
    Menntunar- og hæfnikröfur:
  • Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði
  • Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er nauðsynleg
  • Reynsla eða þekking á Evrópurétti og EES-samningnum nauðsynleg
  • Reynsla eða þekking á samgöngumálum æskileg
  • Mjög gott vald á íslensku og ensku, í rituðu og töluðu máli nauðsynlegt
  • Góð færni í einu Norðurlandamáli æskileg
  • Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum

Um er að ræða fullt starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.  Launakjör eru samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags.

Í boði er áhugavert starf með fjölbreyttum verkefnum þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín.   Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar veita Elísabet Sverrisdóttir, Inga Steinunn Arnardóttir og Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangur í síma 520-4700

Umsóknarfresturer til og með 29.4.2013

 

Flugmálastjórn óskar eftir að ráða eftirlitsmann í flugleiðsögu- og flugvalladeild

    Helstu verkefni:
  • Starfið felst einkum í úttektum og eftirliti með flugvöllum. Vænta má að verkefni viðkomandi munu með tímanum einnig felast í eftirlit með flugleiðsöguþjónustu.
    Menntunar- og hæfnikröfur
  • Háskólapróf sem nýtist í starfi eða annað sambærlegt nám er skilyrði
  • Menntun eða reynsla af tæknisviði er kostur
  • Þekking á gæðakerfum eða reynsla á því sviði skilyrði
  • Þekking á öryggisstjórnunarkerfum (SMS) og úttektum er æskileg
  • Mjög góð tök á íslensku og ensku
  • Mikil hæfni í mannlegum samskiptum

Við leitum að starfsmanni með góða samstarfshæfileika, örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að sýna frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum og vera faglegur í starfi. Starfsmaðurinn þarf að geta unnið sjálfstætt og undir álagi, vera skipulagður og agaður í verkum sínum í hvívetna. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.

Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.

Nánari upplýsingar veita Elísabet Sverrisdóttir, Inga Steinunn Arnardóttir og Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangur í síma 520-4700

Umsóknarfresturer til og með 29.4.2013

 

Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 45 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innanlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.

Vakin er athygli á því að þann 1. júlí n.k. mun Flugmálastjórn sameinast Umferðastofu og hluta Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar undir nafninu Samgöngustofa. Öll störf og verkefni Flugmálastjórnar munu flytjast til nýrrar stofnunar.