Flugmálastjórn Íslands óskar eftir að ráða áhugasaman og duglegan lögfræðing til starfa á stjórnsýslusviði stofnunarinnar.
Helstu verkefni:
- Samning lagafrumvarpa og reglugerða, ásamt þátttöku í vinnu við innleiðingu reglugerða Evrópusambandsins á sviði samgöngumála í samvinnu við innanríkisráðuneytið
- Skrif álitsgerða og framsetning lögfræðilegs efnis
- Svar almennra lagalegra fyrirspurna
- Þátttaka í innlendu og alþjóðlegu samstarfi
Menntunar- og hæfnikröfur:
- Kandídats- eða meistarapróf í lögfræði
- Reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu er nauðsynleg
- Reynsla eða þekking á Evrópurétti og EES-samningnum nauðsynleg
- Reynsla eða þekking á samgöngumálum æskileg
- Mjög gott vald á íslensku og ensku, í rituðu og töluðu máli nauðsynlegt
- Góð færni í einu Norðurlandamáli æskileg
- Frumkvæði, skipulögð vinnubrögð og sjálfstæði í starfi
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Um er að ræða fullt starf og æskilegt að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Launakjör eru samkvæmt samningum fjármálaráðuneytisins og viðkomandi stéttarfélags.
Í boði er áhugavert starf með fjölbreyttum verkefnum þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.
Nánari upplýsingar veita Elísabet Sverrisdóttir, Inga Steinunn Arnardóttir og Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangur í síma 520-4700
Umsóknarfresturer til og með 29.4.2013
Flugmálastjórn óskar eftir að ráða eftirlitsmann í flugleiðsögu- og flugvalladeild
Helstu verkefni:
- Starfið felst einkum í úttektum og eftirliti með flugvöllum. Vænta má að verkefni viðkomandi munu með tímanum einnig felast í eftirlit með flugleiðsöguþjónustu.
Menntunar- og hæfnikröfur
- Háskólapróf sem nýtist í starfi eða annað sambærlegt nám er skilyrði
- Menntun eða reynsla af tæknisviði er kostur
- Þekking á gæðakerfum eða reynsla á því sviði skilyrði
- Þekking á öryggisstjórnunarkerfum (SMS) og úttektum er æskileg
- Mjög góð tök á íslensku og ensku
- Mikil hæfni í mannlegum samskiptum
Við leitum að starfsmanni með góða samstarfshæfileika, örugga og þægilega framkomu og mikinn áhuga á flugstarfsemi. Hann þarf að sýna frumkvæði og nákvæmni í vinnubrögðum og vera faglegur í starfi. Starfsmaðurinn þarf að geta unnið sjálfstætt og undir álagi, vera skipulagður og agaður í verkum sínum í hvívetna. Launakjör taka mið af viðeigandi kjarasamningum opinberra starfsmanna.
Í boði er áhugavert starf hjá Flugmálastjórn þar sem hæfileikar og frumkvæði fá notið sín. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í allt að sex mánuði. Flugmálastjórn áskilur sér rétt til þess að hafna öllum umsóknum.
Nánari upplýsingar veita Elísabet Sverrisdóttir, Inga Steinunn Arnardóttir og Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangur í síma 520-4700
Umsóknarfresturer til og með 29.4.2013
Flugmálastjórn Íslands er ríkisstofnun með u.þ.b. 45 starfsmenn. Hlutverk Flugmálastjórnar er að fara með stjórnsýslu á sviði flugmála innanlands og á alþjóðavettvangi, hafa eftirlit með hvers konar flugstarfsemi á vegum íslenskra aðila til að tryggja öryggi í flugi innanlands og utan. Flugmálastjórn leggur áherslu á jafnan rétt kvenna og karla til starfa.
Vakin er athygli á því að þann 1. júlí n.k. mun Flugmálastjórn sameinast Umferðastofu og hluta Siglingastofnunar og Vegagerðarinnar undir nafninu Samgöngustofa. Öll störf og verkefni Flugmálastjórnar munu flytjast til nýrrar stofnunar.