Páll S. Pálsson, deildarstjóri flugrekstrardeildar
Beinn sími 569 4322
Fax 562 3619
Netfang
palls@caa.isDeildin hefur með höndum eftirlit með flugrekendum með úttekt á flugrekstri almennt, þ.m.t. flugrekstrarbókum og gæðakerfum, sem og afkomu flugrekenda. Öll leyfi til flugrekstrar eru háð samþykki og eftirliti deildarinnar. Flugrekstrardeild hefur eftirlit með atvinnuflugi og einkaflugi. Gerðar eru úttektir á ferjuflugi og tæknilegar úttektir á íslenskum og erlendum loftförum. Þá er farið í flug til að fylgjast með því að flugið fari fram samkvæmt gildandi reglum.
Á árinu 2008 ber það hæst að flugrekendur og flugrekstrardeild eru að aðlaga sig að því að svo kallaður EU-OPS tekur gildi og að Flugöryggissamtök Evrópu (EASA) fær umboð í flugrekstrarmálum.
Flugrekstardeildin ber ábyrgð á því að:
- Fylgjast með einkaflugi.
- Fylgjast með atvinnuflugi íslenskra aðila, starfsreglum flugrekenda, flugliðum svo og afkomu flugrekanda.
- Útgáfa flugrekstrarleyfa sé í samræmi við reglugerð ráðsins 2407/92 og reglugerð um flutningaflug Nr. 193/2006 með áorðnum breytingum.
- Gefa út flugrekandaskírteini sem vottar að flugrekandinn hafi stjórn á flugöryggislegum þáttum í starfsemi sinni. Allt leyfi til flugrekstrar er háð samþykki og eftirliti þessarar deildar. Ennfremur hefur deildin eftirlit með flugi erlendra aðila til og frá landinu eftir því sem tilefni er til og afgreiðir ferjuheimildir um íslenska lofthelgi. Gerðar eru kerfisbundnar úttektir á stjórnun flugrekenda á flugrekstrinum, farið í eftirlitsflug, flugherma og fylgst með starfsemi þeirra hérlendis sem og erlendis, eftir því sem við á. Í samvinnu við skírteinadeild sér deildin um eftirlit með flugskólum er varðar fjárhagslegan grundvöll.
-
Deildin kannar kvartanir og ábendingar frá farþegum, flugrekendum, erlendum flugmálayfirvöldum eða hverjum öðrum sem slíku kemur á framfæri er varða flugöryggi. Leitað er til flugrekandans eða annarra viðkomandi eftir skýringum og síðan er metið hvaða viðbragða sé rétt að grípa til.
Deildarstjóri flugrekstrardeildar er Páll S. Pálsson. Páll lauk atvinnuflugmannsprófi árið 1995 og starfaði sem flugmaður á ATR42 og Boeing 737 til ársins 2003. Páll hefur víðtæka þekkingu á flugi og flugrekstri og starfaði m.a. í flugrekstrardeild Íslandsflugs áður en hann hóf störf hjá Flugmálastjórn Íslands árið 2005.