Ákvarðanir Flugmálastjórnar Íslands eru birtar upplýsingar um ákvarðanir sem teknar eru á grundvelli 140. gr. laga um loftferðir nr. 60/1998 og reglna settra samkvæmt þeim sem almennt gildi hafa en birtast eiga í Stjórnartíðindum.
Flugmálastjórn ákvarðar hvort efni skv. 1. mgr. skuli birta á íslensku eða ensku og skal setja sér verklagsreglur þar um. Heimilt skal að birta tæknilega staðla á ensku eingöngu.
Ákvarðanirnar eru flokkaðar eftir helstu viðfangsefnum Flugmálastjórnar og eru birtar á heimasíðu eftir að auglýsing er birt í Stjórnartíðindum. Einnig er hægt að skoða allar ákvarðanir í tímaröð frá 1998.